Ég

No User

Þú þarft að skrá þig inn til að komast inn á svæðið.

síðasta aðgerð fyrir 5 dögum og 22 klst.

Gísli Baldvinsson's Latest Activity Sjá allt →

  • Gísli Baldvinsson og tcpeebles eru vinir   fyrir 6 dögum

  • Gísli Baldvinsson skrifaði orðsendingu hjá sér:   fyrir 2 vikum og 2 dögum

    Ásmundur Daði dalabóndi er fundinn. A.m.k. fann ég grein eftir hann í Fréttablaðinu á besta stað. (er hann þá Baugspenni?)
    Hann fer mikinn og er þetta svargrein við svargrein Guðmundar Andra Thorssonar um ESB raunir Vinstri grænna.
    Kjarni greinarinnar er tilvísun í þann hluta greinarinnar sem fjalla um sótt hefði verið að samningsréttarkerfum launafólks og stefnumótun innan [...]

  • Gísli Baldvinsson skrifaði orðsendingu hjá sér:   fyrir 3 vikum og 4 dögum

    Ögmundur áttaði sig ekki.
    -
    Í dag fékk Ögmundur Jónasson eftirfarandi bréf:
    Kæri Ögmundur,
    Takk fyrir pistilinn sem ég hef beðið eftir allan daginn :) Ég hafði ákveðnar grunsemdir en eftir lesturinn get ég séð að það er nánast ómögulegt að við getum verið í sama flokki. Sem ”einfaldur indjáni” í þínum flokki hef ég tvo valkosti. Hlusta á [...]

  • Gísli Baldvinsson skrifaði orðsendingu hjá sér:   fyrir 4 vikum

    Takk Ögmundur!

    Hér á Akureyri hafa nokkrir efasemdamenn aðildar að ESB tjáð mér að eftir ræmda grein Ögmundar Jónassonar í Morgunblaðinu þá séu þeir að sannfærast um aðild. Það sem styrkir það er sú staðreynd að Ögmundur skrifar í Morgunblaðið . . . og fréttahryllan AMX er farið að mæra grein Ögmundar. Vonandi áttar maðurinn sig.

  • Gísli Baldvinsson skrifaði orðsendingu hjá sér:   fyrir 1 mánuði

    Tryggvi Þór Herbertsson skrifaði um þá sem sjá stjórnmál í svörtu og hvítu. Hann óskaði eftir málefnalegri umræðu. Þar erum við Tryggvi sammála. Ég skrifaði:

    Við Tryggvi ætlum því að vera í flokki þeirra sem skrifa málefnalega um:

    x Efnahagslega hrun heillar þjóðar – orsakir og afleiðingar

    x Flýta efnahagslegum bótum og koma okkur upp úr efnahagslægðinni án [...]

Gísli Baldvinsson - vinir (1) Sjá allt →

Gísli Baldvinsson's Wire Sjá allt →

  • Ásmundur Daði dalabóndi er fundinn. A.m.k. fann ég grein eftir hann í Fréttablaðinu á besta stað. (er hann þá Baugspenni?)
    Hann fer mikinn og er þetta svargrein við svargrein Guðmundar Andra Thorssonar um ESB raunir Vinstri grænna.
    Kjarni greinarinnar er tilvísun í þann hluta greinarinnar sem fjalla um sótt hefði verið að samningsréttarkerfum launafólks og stefnumótun innan Evrópusambandsins færi í vaxandi mæli fram í dómsölum.
    Það er reyndar ekki bundið sérlega við ESB ríkin en vissulega þarf að vera á þeirri vakt. En svo kemur í lokin rúsína sem ég skil ekki að eigi að vera í pylsunni:

    Ekki minni maður en Stefan Füle,stækkunarstjóri ESB, segir svo ekki vera. Á sameiginlegum fréttamannafundi 27. júlí sl. með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra lýsti stækkunarstjóri ESB því yfir að það væri „ekki hægt að fá neinar varanlegar undanþágur frá lögum ESB“ aðeins tímabundna aðlögun.

    Fyrst Dalabóndinn er fundinn þá má hann gjarnan svara því hvaða fyrirvarar þetta eru.
    Einnig árétta ég spurningu sem ég lagði fyrir hann í háþurrkatíð um hverjir fengu SMS hótanir við atkvæðagreiðslu á Alþingi.

    Aumt Ásmundur ef þú svarar ekki þessu þegar hey er komið í hús.

  • Ögmundur áttaði sig ekki.
    -
    Í dag fékk Ögmundur Jónasson eftirfarandi bréf:
    Kæri Ögmundur,
    Takk fyrir pistilinn sem ég hef beðið eftir allan daginn :) Ég hafði ákveðnar grunsemdir en eftir lesturinn get ég séð að það er nánast ómögulegt að við getum verið í sama flokki. Sem ”einfaldur indjáni” í þínum flokki hef ég tvo valkosti. Hlusta á hræðsluáróður þinn og Davíðs Oddssonar eða að taka málefnalega afstöðu þegar samningur liggur fyrir. Því miður virðist sem lífsrými þitt og ritstjóra Morgunblaðsins fylli fullmikið fyrir minn smekk og þess vegna hef ég ákveðið að segja skilið við Vinstri Græna og mun á morgun segja mig úr flokknum.
    kv. S.

    http://ogmundur.is/fra-lesendum/nr/5449/

    Ætli hann átti sig núna?

  • Takk Ögmundur!

    Hér á Akureyri hafa nokkrir efasemdamenn aðildar að ESB tjáð mér að eftir ræmda grein Ögmundar Jónassonar í Morgunblaðinu þá séu þeir að sannfærast um aðild. Það sem styrkir það er sú staðreynd að Ögmundur skrifar í Morgunblaðið . . . og fréttahryllan AMX er farið að mæra grein Ögmundar. Vonandi áttar maðurinn sig.

  • Tryggvi Þór Herbertsson skrifaði um þá sem sjá stjórnmál í svörtu og hvítu. Hann óskaði eftir málefnalegri umræðu. Þar erum við Tryggvi sammála. Ég skrifaði:

    Við Tryggvi ætlum því að vera í flokki þeirra sem skrifa málefnalega um:

    x Efnahagslega hrun heillar þjóðar – orsakir og afleiðingar

    x Flýta efnahagslegum bótum og koma okkur upp úr efnahagslægðinni án þess t.d. að taka þátt í málþófi á Alþingi.

    x Flýta breytingum á stjórnarskrá og kosningalögum – án málþófs á Alþingi eða hóta slíku.

    x Taka þátt að heilindum í stjórnlagaþingi án þess að sífellt þurfi að blanda flokkslitnum inn í.

    x Gagnrýna tröllasíður s.s. AMX þar sem veruleikinn er verulega firrtur og nokkrir þar ansi einhliða í skoðunum.

    x Síðast en ekki síst ræða málefnalega um inngöngu í EBS án þess að rjúka til og krefjast þess að tefja eða hætta við það ferli.

    Ertu ekki með í þessa vegferð, Tryggvi?

  • Verða hvalveiðar fyrirstaða? Hugleiðingar út frá skrifum Uffe Ellemann Jensen um Ísland og áhuga þeirra á inngöngu í ESB.

    Uffe Ellemann hefur þó nokkra sýn í íslensk stjórnmál og þjóðarsál. Hann kemur hér til veiða og er perónulega kunnur íslenskum stjórnmálamönnum í mörgum flokkum. Hann ræðir hér um helstu ágreiningsmálin:
    ”Der er en række vanskelige knaster i de kommende forhandlinger, som med lidt god vilje vil kunne løses. Fiskeriet er den største knast, men her må det være muligt for EU at tage hensyn til Islands helt særlige afhængighed af fiskeressourcerne. Det alvorligste
    punkt bliver måske hvalfangst, hvilket kan lyde absurd – men det er en udbredt holdning her i Island, at den sag skal omverdenen ikke blande sig i. Man fanger hvaler fordi man har lyst til at fange hvaler, og dermed basta.”

    Er það svo? Munu Íslendingar láta steyta á hvalveiðum? ég held að þetta sé rangt mat hjá honum.
    Þeir íslensku stjórnmálamenn sem hafa bitið það í sig að borga ekki Icesave skuldina fá sinn skammt hjá Uffe. Þar er hann á réttri brautu. Afsakið að ég þýði þetta ekki:

    ”Og her kommer vi så til den særlige islandske forståelse af omverdenen: Det er en udbredt opfattelse i befolkningen, at man da ikke skal dække de tab – det må andre tage sig af. Som en fremtrædende islandsk politiker sagde til mig forleden: De måtte da kunne se, at det var helt uansvarligt at sætte deres sparepenge i en bank fra et land med kun 300.000 indbyggere…

    Men den holdning kommer Island ikke langt med. Der skal findes en ordning på Icesave-gælden, hvis Island skal kunne begå sig i forpligtende internationalt samarbejde. Problemet er bare, at de fleste politikere synes at have låst sig fast i

    opfattelsen af, at landet ikke har råd til at betale sin gæld – og at det derfor vil være urimeligt af omverdenen at kræve det.”