Diana Wallis tók hús á okkur í dag og fræddi okkur um sitt starf á Evrópuþinginu, reynslu Finna, Svía, Breta og fleiri nágrannaþjóða af inngöngu í sambandið.
Hún tók fjölmörg dæmi um það hvernig öflugir einstaklingar geta haft áhrif í mikilvægum málum og hún var meðal annars í nefndinni sem kom í veg fyrir að netþjónustur gætu lokað á fólk sökum gruns um ólöglegt niðurhal án dóms og laga. Ég átti ágætis spjall við hana um netlýðræði og önnur áhugamál. Hún gaf mér svo færi á að taka upp smá baráttukveðju til okkar sem erum sammála.
Nýkjörinn formaður Sjálfstæðra Evrópumanna ávarpar stofnfundinn
Salurinn í Þjóðmenningarhúsinu dugði ekki fyrir allan þann fjölda sem sótti stofnfund Sjálfstæðra Evrópumanna í dag. Urðu margir að standa upp á endann í þann rúma klukkutíma sem fundurinn stóð. Talsvert yfir 200 manns komu til fundarins og eru stofnfélagar um 200.
Benedikt Jóhannesson var kjörinn fyrsti formaður hins nýja félags. Aðrir í stjórn voru kjörnir þessir: til tveggja ára þau Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Pavel Bartoszek og Sigrún Ingibjörg Gísladóttir og til eins árs Halldór Halldórsson, Baldur Dýrfjörð og Hanna Katrín Friðriksson.
við viljum sterkara Ísland sem rís undir nafni sem þjóð meðal þjóða
við virðum skoðanir hver annars
Skráning í félagið
Það er ekki skilyrði að vera félagsmaður til þess að geta verið virkur stuðningsmaður STERKARA ÍSLANDS og fullgildur þátttakandi hér á samfélagsvefnum okkar. Það gefur þó starfseminni enn meiri styrk ef sem flestir kjósa að gerast félagsmenn.