Var að klára að lesa alveg hreint magnað viðtal í Viðskiptablaðinu við Sigurð Braga sem tók sér frí frá rekstrinum í Kína á meðan haldið var upp á áramót þar í landi.
Rauði þráðurinn í viðtalinu er að við verðum að stunda gagnrýna hugsun. Í því samhengi færir Sigurður rök fyrir því að sjávarútvegur með uþb 10% verðmætasköpun í landinu og landbúnaður með 1% séu langt í frá mikilvægustu stoðir atvinnulífsins. Hann telur iðnaðinn í víðustu merkingu þess orðs gegna lykil hlutverki.
Sigurður færir mjög góð rök fyrir því hvers vegna okkur er best borgið innan Evrópusambandsins til framtíðar og ég held ég hlekki bara beint í greinina og mæli með að allir lesi frekar en að endurskrifa hana upp hér.
Diana Wallis tók hús á okkur í dag og fræddi okkur um sitt starf á Evrópuþinginu, reynslu Finna, Svía, Breta og fleiri nágrannaþjóða af inngöngu í sambandið.
Hún tók fjölmörg dæmi um það hvernig öflugir einstaklingar geta haft áhrif í mikilvægum málum og hún var meðal annars í nefndinni sem kom í veg fyrir að netþjónustur gætu lokað á fólk sökum gruns um ólöglegt niðurhal án dóms og laga. Ég átti ágætis spjall við hana um netlýðræði og önnur áhugamál. Hún gaf mér svo færi á að taka upp smá baráttukveðju til okkar sem erum sammála.
Á morgun, laugardaginn 13. febrúar mun Sema Erla formaður Ungra evrópusinnar vera gestur þáttarins ESB – Nei eða Já? á útvarpi Sögu klukkan 12.45. Þar mun hún kynna samtökin, baráttumál og ræða um kosti og galla ESB. Einnig mun formaður nýstofnaðra samtaka ungs fólks gegn ESB aðild vera gestur þáttarins.
við viljum sterkara Ísland sem rís undir nafni sem þjóð meðal þjóða
við virðum skoðanir hver annars
Skráning í félagið
Það er ekki skilyrði að vera félagsmaður til þess að geta verið virkur stuðningsmaður STERKARA ÍSLANDS og fullgildur þátttakandi hér á samfélagsvefnum okkar. Það gefur þó starfseminni enn meiri styrk ef sem flestir kjósa að gerast félagsmenn.