Blogg

Þú ert að skoða sarpinn fyrir tækifæri.

Hvað er líkt með Íslandi og Möltu?

júní 8, 2010

Heimsókn 13 íslenskra frumkvöðla til ESB í mars 2010

Í byrjun mars 2010 fór ég ásamt hópi íslenskra frumkvöðla í heimsókn til höfuðstöðva Evrópusambandsins í Brussel. Alls vorum við 13 Íslendingar úr ýmsum greinum atvinnulífsins. Auk mín voru í þessari ferð Eyjólfur Guðmundsson frá CCP, Hörður Harðarson frá svínaræktarfélagi Íslands, Vilborg Einarsdóttir frá Mentor, Sóley Elíasdóttir frá Sóley Organics, Þórunn Harðardóttir frá Norðursiglingu á Húsavík, Björn Víkingur Björnsson frá Fjallalambi á Kópaskeri, Erla Bjarney Árnadóttir frá Gogogic, Björn Lárus Örvar frá ORF Líftækni, Jón Ágúst Þorsteinsson frá Marorku, Arnar Knútsson frá Filmus, Helgi Haukur Hauksson frá félagi ungra bænda og Víðir Björnsson frá Norðurskel í Hrísey.

Í heimsókn okkar íslensku frumkvöðlanna til Brussel gafst okkur kostur á að hitta Dr. Joanna Drake sem er lögfræðingur frá Möltu og forstöðumaður á svið samkeppnishæfni lítilla og meðalstórar fyrirtækja (e.  Director of SMEs’ competitiveness).

Reynsla Maltverja

Dr. Joanna Drake greindi okkur Íslendingunum frá reynslu Maltverja af veru í Evrópusambandinu. Hún sagði einnig á mjög hreinskilin og heiðarlegan hátt frá reynslu Maltverja af samningaviðræðunum sjálfum og þeirri togstreitu sem ríkti innan maltnesku þjóðarinnar meðan á viðræðum stóð.

Malta er eyríki eins og Ísland og þar búa um 400 þúsund manns, aðeins fleiri en búa á Íslandi. Landið er 316 km2 og íbúar landsins tala eigið tungumál, maltnesku, auk ensku sem er mjög útbreidd. Stjórnvöld Möltu lögðu fram umsókn um aðild Möltu að Evrópusambandinu í júlí árið 1990 og það liðu 14 ár þar til Malta gekk síðan í sambandið; það var í maí árið 2004.

Skv. upplýsingum frá Dr. Joanna Drake skiptist maltneska þjóðin í tvær fylkingar meðan á aðildarviðræðum við Evrópusambandið stóð, með og á móti.

Fylking neikvæðra

Sú fylking sem var andvíg aðild Möltu að Evrópusambandinu ól á ótta við sambandsaðildina. Fjölskyldan er horsteinn samfélagsins á Möltu og konur óttuðust að synir þeirra yrðu sendir í Evrópuher sem brátt yrði stofnaður og látnir berjast á erlendum vígstöðvum. Margar konur voru því andvígar aðild Möltu að Evrópusambandinu  og töldu að sambandsaðild þýddi að fjölskyldum yrði sundrað. Lífskjör á Möltu voru ekki sambærileg við það sem gerðist best í Evrópulöndunum á þessum árum og því óttaðist fólk einnig að ungt fólk flytti brott til náms og betur launaðra starfa og kæmi aldrei aftur tilbaka. Stjórnendur fyrirtækja óttuðust samkeppni við evrópsk fyrirtæki sem greiddu hærri laun og óttuðust að missa vinnuafl úr landi. Sumir álitu jafnvel að lífkjör Maltverja myndu versna til muna  við að landið gengi í Evrópusambandið. Fólk leit gjarnan á Möltu sem „lítinn fisk“ sem yrði strax gleyptur af „stóra fiskinum“.

Fylking jákvæðra

Sú fylking manna sem var jákvæð gagnvart aðild Möltu að Evrópusambandinu leitaðist við að sjá tækifærin sem fælust í aðild. Það var fólk sem vildi að Malta fengi áhrif á vettvangi Evrópusambandsríkja, gjarnan fólk sem vildi sjá breytingar á stjórnarfari í átt að opnari og gegnsærri stjórnsýslu. Þessi fylking benti á ýmis spillingarmál og krafðist úrbóta, bættrar löggjafar og eftirlits með stjórnmálamönnum.

Almenn viðhorf fólks á Möltu

Dr. Joanna Drake minntist einnig á að meðan á aðildarviðræðum stóð hefði fólk verið mjög upptekið af því að hugsa um hvaða ávinning það hefði sjálft af því að þjóðin gengi í Evrópusambandið. Viðhorfið var gjarnan: “Hvað fæ ÉG?”

Þegar loks til þjóðaratkvæðagreiðslu kom samþykktu 54% íbúa á Möltu aðild að Evrópusambandinu.

Nú hefur þetta gjörbreyst, sagði Joanna Drake. Að hennar sögn hafa lífskjör batnað svo mikið á Möltu að nú ríkir almenn sátt um aðildina. Fólk horfir til tækifæranna sem felast í samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir og viðhorfskannanir þar í landi sýna að fólk er ánægðast með aukin lífsgæði, bætt hreinlæti, betri heilbrigðisþjónustu. Fólk nefnir einnig að spilling hafi minnkað og stjórnsýsla öll orðið opnari og gegnsærri. Umhverfismál skipta miklu máli og Maltverjum finnst að í þeim málum fái þeir mikinn stuðning Evrópusambandinu.

Evruaðild Möltu

Maltverjar tóku upp Evru árið 2008, það tók 4 ár en gekk vel. Evran hefur þýtt agi fyrir fólk, neytendur og stjórnvöld. Fólk lætur sig efnahagsmálin miklu meira skipta en áður fyrr. Nú, fyrri hluta árs 2010, er lítil kreppa á Möltu. Atvinnuástand er gott og stöðugt, þótt aðeins hafi dregið úr ferðamannastraumi. Mesta óánægjan er vegna ólöglegra innflytjenda og vandamálum sem þeim fylgja í þessu litla landi. Meira en 2000 flóttamenn og ólöglegir innflytjendur koma til Möltu frá Afríkuríkjum á ári hverju. Flestir þeirra líta á Möltu sem millilendingu á leið sinni til Ítalíu. Stjórnvöldum á Möltu ber skylda til að hjálpa þessu ólöglegu innflytjendum, en engin sameiginleg innflytjendastefna hefur víst enn verið mörkuð hjá Evrópusambandinu. Það gefur auga leið að það hlýtur að ve  agríðarlega kostnaðarsamt að halda öllu þessu fólki upp mánuðum og jafnvel árum saman.

Gæfuspor

Dr. Joanna Drake er sannfærð um að innganga Möltu í Evrópusambandið hafi verið gæfuspor fyrir Maltverja. Hún segir að almenningur hafi verið mjög vel upplýstur um öll mál þegar kom að atkvæðagreiðslu, eftir 14 ára umræður um kosti og galla aðildar Möltu að sambandinu. Hún gaf okkur Íslendingum þau ráð að vera heiðarleg og opin í allri umræðu um Evrópumálin hér á landi. Hún nefndi að umræðan á Möltu hefði á köflum verið mjög tilfinningaþrungin og illa hafi gengið að ræða við marga með rökum. Hún varaði við því að aðilar beittu hræðsluáróðri. Hún varaði einnig við því að embættismönnum væri beitt of mikið í Evrópuumræðunni. Betra væri að venjulegt fólk fengi tækifæri til að fræðast og kynna sér málin og það fólk fengi svo áfram tækifæri til að fjalla um Evrópumálin á mannamáli á opinberum vettvangi.

Ef endurtaka ætti

Loks spurðum við Dr. Joanna Drake hvað hún myndi vilja gera öðru vísi ef endurtaka ætti samningaviðræður Möltu við Evrópusambandið. Hún svaraði því til að nota hefði átt enþán meiri tíma í undirbúningsvinnu vegna samningsmarkmiða, kynningu og fræðslu til fólks. Hún nefndi einnig að meira gagnsæi hefði mátt vera gagnvart þjóðinni og að málflutningur hefði þurft að vera skiljanlegri. Embættismenn hefðu verið of áberandi í málflutningi og mikilvægt væri að nota mál sem venjulegt fólk skilur. Hún mælti með að fólk veldist til að tala inn í vissar atvinnugreinar og samfélagshópa. Evrópumálin eru á ábyrgð ríkisstjórnar en ekki einstakra flokka og forðast bæri að hafa umræðuna flokkspólitíska.

Lærum af reynslu Maltverja

Þessi fundur okkar íslenskra frumkvöðla með Dr. Joanna Drake rifjaðist upp fyrir mér þegar ég sá auglýsingu ungra bænda með stríðsfyrirsögn og skriðdreka, sem birtist í dagblöðum nýverið. Sem fyrr segir var Helgi Haukur Hauksson formaður ungra bænda með í þeirri ferð sem ég hef hér greint frá. Hann ásamt öðrum var mjög gagnrýninn á upplýsingar sem lagðar voru fram á fundum okkar í Brussel. Hópurinn í heild var reyndar mjög gagnrýninn og tækifærin til að spyrja og afla upplýsinga voru óspart nýtt. En það sem ýtti mér út í þessi skrif núna er viðvörun sú sem Dr. Joanna Drake gaf okkur, að gæta þess vel að spila ekki með tilfinningar fólks á ómálefnalegan hátt í umræðum um Evrópusambandsaðild Íslands. Það finnst mér að hafi gerst þegar ungir bændur reyndu að skelfa fólk með því að leggja að jöfnu aðild Íslands að Evrópusambandinu og það að börnin okkar verði send í Evrópuher og látin berjast á erlendum vígvöllum. Sams konar umræða fór í gang á Möltu árið 1990, fyrir 20 árum síðan. Þar í landi náðu menn að lokum taki á taugaspennunni sem fylgdi umræðunni um Evrópusambandsaðild.

Reynum að læra af reynslu annarra þjóða. Leggjum okkur fram við skilgreina samningsmarkmið Íslands í viðræðunum sem framundan eru og verum dugleg við að afla okkur upplýsinga og miðla þeim áfram til annarra. Munum að við erum í rauninni öll í sama liði.

Svana Helen Björnsdóttir,
forstjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja

Fróðleikur á fimmtudegi IX – Felldi Grikkland Evrópumálstaðinn?

júní 3, 2010

Jón Sigurðsson rekur smiðshöggið á fundaröðina okkar þetta vorið.

Jón sem er lektor við HR, er einnig fyrrverandi seðlabankastjóri, fyrrverandi ráðherra og skólastjóri. Hann ætlar að velta fyrir sér hvort fjármálakreppan í Grikklandi hafi gert út af við Evrópumálstaðinn.

Án efa verður þetta áhugavert erindi en Jón hefur getið sér gott orð fyrir áhugaverða fyrirlestra um Evrópumálin.

Skráning á Facebook.

Evrópusambandið: til sjávar og sveita, borgar og bæja

júní 2, 2010

Þegar ég settist niður og fór að íhuga hvaða hliðar Evrópusambandsins mig langaði að skrifa um fór ég strax að hugsa um það sem ég skrifa vanalega um en það eru hlutir eins og friður, lýðræði, frelsi, mannréttindi og menntamál innan Evrópusambandsins. Allt eru þetta mikilvægir málaflokkar innan Evrópusambandsins enda var sambandið stofnað með þessa þætti í huga.

Ég fór þó að velta þessu aðeins fyrir mér og ákvað loks að skrifa um nokkuð sem þykir ekki endilega rosalega sexý eða skemmtilegt, en samt sem áður mjög mikilvægt fyrir okkur Íslendinga þegar kemur að Evrópusambandinu, en það eru byggðamál Evrópusambandsins. Frá því að hið nána samstarf sex Evrópuríkja hófst fyrir meira en hálfri öld síðan eru aðildarríki þess sem árið 1993 varð formlega að Evrópusambandinu orðin 27 og æ fleiri ríki sækjast eftir að taka þátt. Málefni Evrópusambandsins eru orðin fleiri en hægt er að telja á fingrum sér og hefur sambandið meðal annars tekið upp sameiginlegan gjaldmiðil, innri markað án landamæra og er leiðandi á sviðum eins og umhverfisvernd og þróunaraðstoð.

Þátttaka Íslands í þessu nána samstarfi Evrópuríkja hefur ekki gengið jafn langt og hin 27 ríki hafa tileinkað sér, en með gildistöku EES-samningsins (samningurinn um evrópska efnahagssvæðið) árið 1994 tóku Íslendingar þó nokkuð stórt skref í átt að Evrópusambandinu. Ísland varð þá meðal annars hluti af innri markaði Evrópusambandsins og samþykkti að fylgja reglum sambandsins að svo miklu leyti sem þær náðu til samningsins. Þetta var þó allt gert með hinum ýmsu fyrirvörum, mörgum hinum sömu og við heyrum í umræðunni um fulla aðild Íslands að Evrópusambandinu, eftir að Alþingi samþykkti í fyrra að sækja um aðild.

EES-samningurinn hefur haft mikil áhrif á Ísland og hefur verið mótandi fyrir íslenskt samfélag að mörgu leyti. Það verður þó að viðurkennast að síðan EES-samningurinn gekk í gildi hefur Evrópusambandið tekið miklum breytingum og í raun má segja að það sé í stöðugri mótun og þróun. Í gegnum EES-samninginn hafa Íslendingar rétt til þess að taka þátt í hinum ýmsu samstarfsáætlunum Evrópusambandsins eins og menntaáætlun þess, rannsóknaráætlun þess, ungmennaáætlun Evrópusambandsins og rammaáætlun um jafnrétti kynjanna. Það er því varla hægt að segja að við njótum ekki góðs af EES-samningnum.

Eins og áður sagði tekur Ísland með EES-samningnum ekki fullan þátt í samstarfi Evrópuþjóðanna 27 en það kæmi eflaust mörgum á óvart að hve miklu leyti við tökum í raun þátt. Ef farið er í gegnum þá 35 málaflokka Evrópusambandsins sem semja þarf um í aðildarviðræðum sést að Ísland tekur nú þegar þátt í meirihluta þeirra eða 23 af 35, en sem dæmi má nefna að við tökum þátt í umhverfismálum Evrópusambandsins, málefnum vísinda og rannsókna, málefnum menntunar og menningar og Schengen landamærasamstarfinu. Einn af þeim þáttum sem hins vegar tekur ekki til EES-samningsins og Ísland hefur ekki aðgang að er 22. kafli sem fjallar um uppbyggingarstyrki Evrópusambandsins.

Nú þegar Ísland hefur sótt um fulla aðild að Evrópusambandinu þarf að semja um þá kafla sem ekki falla undir EES-samninginn og er kaflinn um uppbyggingarstyrki einn af þeim, en þessi málaflokkur er mjög mikilvægur fyrir Ísland og Íslendinga, hvort sem þú býrð í Reykjavík, á Akureyri, á Akranesi eða annars staðar á landinu.

Lög og reglur Evrópusambandsins sem falla undir þennan málaflokk felast helst í rammalöggjöf og reglugerðum um framkvæmd hennar, sem hafa bein réttaráhrif og þarfnast ekki innleiðingar í landslög aðildarríkis. Þessi löggjöf kveður í raun á um þær reglur sem gilda um smíði, samþykkt og framkvæmd áætlana sem heyra undir uppbyggingar- og byggðaþróunarsjóði Evrópusambandsins í samræmi við stjórnsýslukerfi hvers aðildarríkis. Ég veit þetta hljómar flókið, en ekki hætta að lesa alveg strax.

Eitt af meginmarkmiðum Evrópusambandsins er að stuðla að efnahagslegum og félagslegum jöfnuði milli ólíkra svæða og landshluta í Evrópu. Byggðaþróunarstefnu Evrópusambandsins er ætlað að verka sem nokkurs konar mótvægi gegn því að þeir kraftar sem hið aukna viðskiptafrelsi og hin aukna samkeppni innri markaðarins komi sumum svæðum og aðilum innan sambandsins vel og öðrum síður. Þannig er stefnunni ætlað að stuðla að jafnari dreifingu velmegunar innan sambandsins, en það er, að draga úr muninum á efnahagslegu þróunarstigi milli landsvæða og aðildarríkja sambandsins. Þannig höfum við Íslendingar nú þegar viðskiptafrelsið með EES-samningnum og innri markaðinn, en ekkert til þess að koma á stöðugleika og jafnvægi.

Rúmlega þriðjungur allra útgjalda á fjárlögum Evrópusambandsins fer í að fjármagna verkefni á vegum byggðaþróunarstefnunnar. Sú grundvallarregla gildir að styrkir úr þróunarsjóðum Evrópusambandsins komi til uppbótar fjármögnun frá opinberum aðilum (ríki/sveitarfélög) innan hvers aðildarríkis. Á fjárlagatímabilinu hjá Evrópusambandinu árin 2007-2013 er gert ráð fyrir að verja 348 milljörðum evra í byggðarþróunarstefnu ESB.

Þróunarsjóðirnir eru aðallega tveir: evrópski byggðarsjóðurinn og evrópski félagssjóðurinn, en evrópski byggðarsjóðurinn hefur frá árinu 1975 tekið þátt í að fjármagna sköpun sjálfbærra starfa, fjárfest í endurbótun á innviðum á borð við vegakerfi og öðrum samgöngumannvirkjum, styrkt samstarf milli sveitarfélaga og héraða og veitt tæknilega aðstoð. Evrópski félagssjóðurinn hefur að meginmarkmiði að bæta aðstæður atvinnusköpunar í Evrópusambandinu og hefur frá árinu 1958 átt þátt í að fjármagna ráðstafanir til að greiða leið atvinnulausra inn á vinnumarkaðinn og bæta almennt stöðu þeirra sem halloka standa á þeim markaði. Við hlið þessara þróunarsjóða er síðan rekinn svonefndur Jöfnunarsjóður, sem frá árinu 1994 hefur haft það hlutverk að hjálpa til við að stuðla að efnahagslegri, félagslegri og byggðalegri samleitni innan sambandsins. Hljómar eins og eitthvað sem Ísland gæti vel þegið aðstoð með? Það held ég.

Þegar kemur að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið er það mikilvægasta að semja um hvernig Ísland í heild sinni og einstök landsvæði (höfuðborgarsvæðið/landsbyggðin) yrðu skilgreind inn í uppbyggingar- og byggðastyrkjakerfið hjá Evrópusambandinu. Eðlilegt samningsmarkmið Íslands, samkvæmt Auðunni Arnórssyni í bók sinni Inni eða úti? Aðildarviðræður við Evrópusambandið, væri að fá allt landið, vegna einangrunar í úthafinu, strjálbýlis og óblíðrar náttúru, skilgreint inn í „markmið 1″ í uppbyggingar- og byggðastyrkjakerfiun. Það gæti haft mikið um það að segja hversu mikið íslenskir aðilar gætu fengið greitt úr sameiginlegum sjóðum ESB.

Í greinagerð sem unnin var fyrir Samtök íslenskra sveitarfélaga um hugsanleg áhrif aðildar að Evrópusambandinu á íslensk sveitarfélög kemur fram að talið er til helstu kosta aðildar að íslenskum sveitarfélögum opnist aðgangur að styrkjum úr byggðarsjóðum ESB og ákvörðunum um með hvaða hætti þeim er úthlutað til einstakra svæða hér á landi. Aðrir kostir sem nefndir eru er aðgangur að styrkjum úr landbúnaðar-/dreifbýlissjóði ESB, aðgangur að styrkjum til sjávarbyggða, aðild að öllum áætlunum ESB, hvati að auknu samastarfi sveitarfélaga, landshlutasamtaka og öflugri stjórnsýslu sveitarfélaga, meira forræði sveitafélaga í byggðamálum og aðgangur að stofnunum ESB sem fjalla um byggða- og sveitastjórnarmál.

Hér hefur verið stiklað á stóru enda ómögulegt að telja upp allar hliðar byggðastefnunnar í einni grein. Byggðastefna Evrópusambandsins er eflaust mörgum ókunnug og vera má að margir séu að heyra af henni í fyrsta skipti og ég er nokkuð viss um að nú hafi ég komið nokkrum á óvart, en það er mjög mikilvægt fyrir sveitarfélögin að kynna sér þessa stefnu Evrópusambandsins vandlega enda felast í henni gríðarleg tækifæri fyrir land og þjóð því Íslendingar þurfa jú á öflugri byggðarstefnu að halda.

Grein þessi hefði ekki getað verið skrifuð án þeirra upplýsinga sem koma fram í bók Auðunns Arnórssonar, Inni eða úti? Aðildarviðræður við Evrópusambandið og í bók Eiríks Bergmanns, Frá Evróvisjón til Evru.

Fróðleikur á fimmtudegi VI – 20. maí

maí 14, 2010

Fundaröðin fróðleikur á fimmtudegi heldur áfram. Búið er að skipuleggja fundi næstu þrjá fimmtudaga. Að venju hefjast fundirnir kl. 17 og eru að Skipholti 50a, 2. hæð.

20. maí

Viðskiptastefna ESB – áhrif aðildar á viðskiptasamninga íslenska ríkisins

Aðalsteinn Leifsson, lektor við HR, fjallar ræðir um viðskiptastefnu Evrópusambandsins og hvaða áhrif aðild Íslands að sambandinu myndi hafa á viðskiptasamninga Íslands við önnur ríki.

Skráning á Facebook

27. maí

Launin – kaupmátturinn – réttindin

Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, fjallar um aðild Íslands að Evrópusambandinu með hliðsjón af hagsmunum launafólks og áhrifum á starfskjör.

3. júní

Viðskiptaáætlun Íslands

Dr. Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri Thule investments, fjallar um þróun íslensks atvinnulífs til framtíðar og hvernig aðild að ESB fara saman.

Þess vegna er ég Evrópusinni

apríl 23, 2010

Frá því Ísland varð sjálfstætt ríki hefur því í öllum aðalatriðum vegnað vel og komist í hóp þeirra ríkja heimsins þar sem lífskjör eru einna best. Þetta hefur að hluta tekist vegna eigin rammleiks og þrautsegju en ekki síður vegna ytri aðstæðna, ekki síst á alþjóðavettvangi, sem sköpuðu þjóðinni afar hagstæð skilyrði.

Vogarafl
Lega landsins varð að gríðarlegu vogarafli í samskiptum okkar til austurs og vesturs. Síðari heimsstyrjöldin leiddi í ljós hernaðarlegt mikilvægi landsins í styrjöldinni sjálfri og síðan í eftirleik styrjaldarinnar, kalda stríðinu, allt til brotthvarfs Bandaríkjahers frá Keflavíkurflugvelli.

Þetta vogarafl nýttum við okkur óspart í uppbyggingunni eftir stríð, t.d. í tengslum við Marshall-aðstoðina, síðan í tengslum við alls kyns viðskipti, bæði til austurs og vesturs, loftferðasamninga og ekki síst beittum við því í tengslum við útfærslu landhelginnar. Þetta varð allt undirstaða fyrir aukna velsæld og síðar framþróun og umbreytingu í atvinnulífinu.

Nýr kraftur
Umbreyting atvinnulífsins seig hægt af stað með aðild Íslands að EFTA 1970 og fríverslunarsamningunum við ESB 1972. Þeir samningar opnuðu samkeppni í iðnaði og þó hún væri erfið í fyrstu varð hún forsenda þess að hér hefur smá saman orðið til þróttmikill iðnaður. Aðild Íslands að EES-samningnum 1994 opnaði fyrir samkeppni á öðrum sviðum atvinnulífsins, nema landbúnaði og sjávarútvegi, auk þess að veita Íslandi aðgang að margvíslegu samstarfi á fjölmörgum sviðum, t.d. vísinda og mennta. Aðildin að EES hleypti enn nýjum krafti í atvinnulífið og þjóðlífið allt.

Breyttar aðstæður
Þróun alþjóðamála hefur leitt til þess að vogaraflið sem við höfðum vegna legu Íslands er horfið. Nú erum við vegin og metin af eigin verðleikum. Við verðum að spila sem best úr þeim spilum sem við höfum á hendi, þau eru vissulega allgóð og þar leynast inn á milli hin þokkalegustu trompspil.

Efnahagshremmingar þær sem hafa gengið yfir heimsbyggðina og ekki síst skekið Ísland sýna svart á hvítu hve háðar þjóðirnar eru hver annarri. Margs konar önnur verkefni krefjast samvinnu og nægir þar að nefna umhverfismál og nýtingu auðlinda. Þá er býsna nærtækt að benda á eldgosið í Eyjafjallajökli og víðtækar afleiðingar þess á fjölmargar þjóðir.

Hreyfiaflið
Ísland er Evrópuland. Það er því nærtækast að leitað sé eftir samvinnu við Evrópuþjóðir. Ísland hefur gert það með góðum árangri á liðnum áratugum. Við eigum að halda áfram á sömu braut og ganga í Evrópusambandið. Þar getum við beitt okkur á þeim sviðum sem varða okkur mestu og jafnframt miðlað til annarra þar sem við stöndum vel að vígi. Samtímis njótum við styrks af samvinnunni og skjóls af sameiginlegu afli tæplega 30 Evrópuríkja.

Evrópusambandið er hreyfiafl Evrópu og við erum undir áhrifasvæði þess og örlög okkar fara óhjákvæmilega saman. Ísland á að taka fullan þátt í að móta eigin framtíð.

Ég vil sterkara Ísland, Ísland sem er þjóð meðal þjóða – þess vegna er ég Evrópusinni.


(Birtist fyrst sem grein í Morgunblaðinu 23. apríl 2010 undir fyrirsögninni: Sterkara Ísland – þjóð meðal þjóða)

Fróðleikur á fimmtudegi IV – 29. apríl

apríl 22, 2010

Áfram höldum við með fundaröðina okkar. Þrír fundir eru að baki og hafa allir tekist vel.

Á fundinum þann 29. apríl fjallar Anna Margrét Guðjónsdóttir , sérfræðingur, um samspil nokkurra uppbyggingarsjóða ESB og hvaða tækifæri gætu falist þar fyrir Ísland. Erindi sitt kallar hún: Uppbyggingarsjóðir, dreifbýlissjóðir og sjávarbyggðasjóðir ESB.

Að venju hefst fundurinn kl. 17 og er haldinn að Skipholti 50a, II. hæð.

Hér er fundurinn skráður á Facebook.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Næsti fundur í röðinni er svo 6. maí en þá ræðir Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur um íslenska menningu og Evrópusambandið.

Efnahagsvandinn, Evrópusambandið og sjávarútvegurinn

mars 19, 2010

Ég verð með erindi í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum klukkan 11.00 laugardaginn 20. mars.

Efnahagsvandinn, Evrópusambandið og sjávarútvegurinn

Allri velkominr

Ísland verður sterkara innan ESB

febrúar 24, 2010

Frá haustdögum 2008 hafa orðið sviptingar í íslensku þjóð- og efnahagslífi, meiri en nokkurn óraði fyrir. Sjálfsmynd okkar beið mikinn hnekki þegar í ljós kom að innviðir velgengni okkar reyndust á mörgum sviðum feysknir. Ekki bætti úr skák að á augabragði breyttist aðdáun umheimsins á litla Íslandi í góðlátlega meðaumkun í besta falli en að öðru leyti í afskiptaleysi sem við eigum erfitt með að skilja.

Efnahagslegir erfiðleikar hafa leitt til þess að í stað þess að vera fyrirmynd annarra ríkja í efnahagslegri velgengni höfum við orðið að leita á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og eigum í erfiðum samskiptum við Breta og Hollendinga vegna Icesave. Okkur þykir sem bandamenn okkar til langs og skamms tíma hafi á ögurstundu brugðist okkur í stað þess að leggja okkur lið.

Óvinafagnaður
Þessi staða er frjór jarðvegur fyrir þá sem vilja ýta undir þjóðerniskennd og rómantískar hugmyndir. Því er haldið fram að réttast sé að Íslendingar láti Evrópu sigla sinn sjó og að okkur farnist best einum og óstuddum með fullt forræði yfir eigin málum og gjaldmiðli. Staðan sýni svart á hvítu að þegar á reyndi yrði aðild að ESB ekkert annað en óvinafagnaður þar sem Ísland mætti sín lítils gegn þjóðum sem hyggja flátt í garð Íslendinga og íslenskra hagsmuna.

Að minni hyggju er þessu þveröfugt farið. Atburðarás síðustu missera sýnir glöggt hve vegferð þjóða er samtvinnuð og hve mikilvægt það er að taka saman á hlutum og hafa vettvang til þess að ráða sameiginlega fram úr vandasömum málum. ESB er slíkur vettvangur og raunar sá eini þar sem Íslandi gefst kostur á að setjast til borðs. ESB er ekki gallalaust og Íslendingar munu ekki fá öll sín vandamál leyst þar. Við munum örugglega þurfa að beygja okkur undir einhverjar ákvarðanir sem eru okkur ekki að skapi. Innan ESB höfum við hins vegar raunverulegan aðgang að ákvörðunum og getum talað okkur máli. Að standa utan ESB leiðir hins vegar til fullkomins áhrifaleysis og engum ber nein sérstök skylda til þess að taka tillit til okkar hagsmuna.

Við eigum erindi
Ísland er ekki stórveldi og verður aldrei. Ísland er og verður háð samskiptum og viðskipum við aðrar þjóðir. Ísland og Íslendingar hafa samt sem áður sýnt og sannað að þeir eiga fullt erindi í alþjóðlegt samstarf og geta lagt þar gott til mála og að á þá er hlustað. Engin ástæða er því til að hafa minnimáttarkennd gagnvart aðild að ESB. Þar getum við gengið stolt til leiks og lagt okkar af mörkum til sameiginlegra verkefna og stefnumótunar á vettvangi fullvalda þjóða. Samvinnan leiðir oftar en ekki til betri lausna en að hver hokri í sínu horni.

Aðild að ESB er ekki lausn á aðsteðjandi efnahagsvanda. Evra leysir Íslendinga ekki undan því að kunna fótum sínum forráð í stjórn efnahagsmála sinna. Þetta má glöggt læra af vandræðum Grikkja um þessar mundir. Þeirra vandi snýr hins vegar ekki að því að aðild að ESB eða Evran hafi steypt þeim í vandræði. Vandi þeirra er algjörlega heimatilbúinn, sannkallað sjálfskaparvíti.

Aðild Íslands að ESB og upptaka evru hefur í för með sér að við verðum að temja okkur meiri aga og ábyrgð í stjórn efnahagsmála á öllum sviðum. Það verður erfitt og ef illa tekst til lendum við í vandræðum. Takist okkur hins vegar að nýta tækfærin af skynsemi er líklegt að við náum langþráðum stöðugleika í efnahagsmálum, minni verðbólgu, lægri vöxtum og áhrif gengissveiflna verði nánast úr sögunni. Þessi ávinningur er hluti af því sem fylgir aðild að ESB.

Þjóð meðal þjóða
Við munum ekkert fá á silfurfati frekar en fyrri daginn þótt við göngum í ESB. Eftir sem áður verðum við að vinna hagsmunum okkar framgang af elju og þrautseigju. Með því að velja okkur réttan vettvang til að vinna á verður Ísland sterkara í samfélagi þjóðanna. Það ætti að vera keppikefli okkar allra.

Birtist fyrst sem grein í Fréttablaðinu 24. febrúar 2010.