Blogg

Þú ert að skoða sarpinn fyrir myndband.

Æ – hann er svo lítill greyið

mars 13, 2010

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, flutti merkilega ræðu á Iðnþingi 4. mars sl. Hann ræddi vítt og breytt um atvinnulífið og að íslenska efnahagsumgjörðin hafi hingað til einkennst af því að hér voru stuttar boðleiðir, mikill sveigjanleiki og tiltölulega lítt íþyngjandi eftirlitsstofnanir.

Aðlögunarhæfni atvinnulífsins var mikil en myntin okkar örlítil. Þetta umhverfi stuðlaði að alvarlegri fjármála- og efnahagskreppu. Ríkissjóður er stórskuldugur og orðspor okkar hefur beðið mikla hnekki. Atvinnuleysi er ógnvænlegt og nauðsynlegt að skapa skilyrði til að draga úr því.

„En því miður hefur okkar háttur verið sá að redda okkur út úr vandamálum frekar en að sveigja framhjá þeim. Nú þarf nauðsynlega að breyta um farveg. Hagkerfið er nánast lokað og ég óttast að þarna vilji sumir vera.“

„Það eru því miður engar patentlausnir á þeim vanda sem við er að etja. Við þurfum á skýrri stefnumörkum og forystu að halda til að hér geti áfram þrifist kröftugt atvinnulíf.“ Jón sagði jafnframt að aðild að ESB gæti fært okkur bætta stöðu í alþjóðsamfélaginu og betri starfsskilyrði.

Það er kominn tími til að leika litla bróður og ætla að fljóta á því í samskiptum við aðrar þjóðir.

Hér má skoða glærur Jóns Sigurðssonar og jafnframt horfa og hlusta á útdrátt úr erindi hans.

Fjölmenni á stofnfundi

febrúar 12, 2010
Nýkjörinn formaður Sjálfstæðra Evrópumanna ávarpar stofnfundinn

Nýkjörinn formaður Sjálfstæðra Evrópumanna ávarpar stofnfundinn

Salurinn í Þjóðmenningarhúsinu dugði ekki fyrir allan þann fjölda sem sótti stofnfund Sjálfstæðra Evrópumanna í dag. Urðu margir að standa upp á endann í þann rúma klukkutíma sem fundurinn stóð.  Talsvert yfir 200 manns komu til fundarins og eru stofnfélagar um 200.

Benedikt Jóhannesson var kjörinn fyrsti formaður hins nýja félags. Aðrir í stjórn voru kjörnir þessir:  til tveggja ára þau Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Pavel Bartoszek og Sigrún Ingibjörg Gísladóttir og til eins árs Halldór Halldórsson, Baldur Dýrfjörð og Hanna Katrín Friðriksson.

Hér má sjá nokkrar myndir frá fundinum.

Upptökur af ræðum af www.hjariveraldar.is

Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Jónas Haralz

Katrín H. Hallgrímsdóttir
Gunnar Þórðarson
Þorsteinn Pálsson
Benedikt Jóhannesson

Ræðu Benedikts má lesa hér.

Á hlaupabretti að hugsa um gengi japanska jensins

febrúar 6, 2010

Fínir punktar frá Bergi Ebba um breytingar seinustu ára og hvernig við þurfum að nálgast umræðu næstu vikna.

If you can see this, then you might need a Flash Player upgrade or you need to install Flash Player if it's missing. Get Flash Player from Adobe.