Blogg

Þú ert að skoða sarpinn fyrir ESB.

ESB segi nei

júní 21, 2010

Ég er ekki viss um að þetta lið hjá ESB geri sér grein fyrir hvurslags mistök það er að fara að gera með því að hefja aðildarviðræður við Ísland.

Ég meina nóg er nú á þetta samband lagt nú á meðan átt er við efnahagskrísur og annan óskunda.

Því af tíðindum á Íslandi að dæma eru hörmungarnar bara rétt að byrja, þ.e. ef aðildarviðræður hefjast við Ísland.

Fyrst ber að telja að þau 27 aðildarríki sambandsins sem þar eru fyrir munu umsvifalaust tapa öllum sérkennum sínum og sjálfstæði. Ríki, sem eru í dag jafn fjölbreytt í menningu, stjórnarháttum og lífstíl og Svíþjóð, Austurríki, Portúgal, Bretland, Lúxemborg og Slóvakía, munu á einni nóttu umbreytast í grá og stöðluð leiðindalönd þar sem allir og allt er eins samkvæmt staðli andlitslausra skriffinna í Brussel.

Einnig mun það gerast að hið núverandi Evrópusamband mun á svipstundu breytast í “stórríki” og núverandi aðildarlönd breytast í áhrifalaus fylki, með littla sjálfstjórn og littla von. Á sama tíma mun reyndar þetta stórríki liðast í sundur vegna innri átaka, ósamstæðrar stefnumörkunar, t.a.m. í efnahagsmálum, og evran, hin sameiginlega mynt, hverfa af yfirborði jarðar.

Augljós viðbótarafleiðing af aðild Íslands verður jafnframt aukið áhrifaleysi smærri ríkja innan sambandsins og aukin áhrif þeirra stærri. Aðild Íslands mun auk þess hafa veruleg áhrif á stöðu allra ríkjanna innan Sameinuðu þjóðanna, en þar munu raddir þeirra að mestu þagna. Aðildarríki ESB myndu að auki tapa miklu af því sjálfsforræði sem þau nú hafa yfir eigin auðlindum, allt vegna aðildar Íslands.

Við aðild Íslands mun miðstýring innan ESB einnig stóraukast og fyrirsjáanlegt að fram mun fara “…sívaxandi valdasamþjöppun í miðstýrðum stofnunum ESB sem að litlu leyti lúta eftirlitsvaldi kjósenda…”. Fjarlægð embættismannakerfis ESB frá hinum almenna ESB borgara mun einnig stóraukast og skilningsleysi embættismanna ESB að sama skapi á högum og háttum einstakra aðildarríkja sömuleiðis. Hugsanlega mun almennt tillitsleysi stóraukast um alla álfuna. Biðraðamenning mun almennt leggjast af og um alla Evrópu munu Evrópubúar framvegis leggja bílum sínum upp á gangstétt fyrir framan dyr þeirrar verslunar eða stofnunar sem þeir eiga erindi við hverju sinni.

Almennt atvinnuleysi upp á a.m.k. 20 prósent mun einnig hellast yfir alla álfuna. Slíkt atvinnuleysi, sem hingað til ekkert ríki ESB hefur þurft að þola, en Spánn hefur komist næst (18%), verður við aðild Íslands landlægt. Gott ef ekki fyrirskipað af embættismönnum í Brussel. Það verða jú allir að marsera í takt í öllu, alltaf, við aðild Íslands! Slæmar afleiðingar af þessu yrðu svo frekar magnaðar af hinni sameiginlegu mynt sem allt um lykur, þrátt fyrir yfirvofandi upplausn hennar.

Við aðild Íslands aukast einnig verulega líkur á að ESB taki yfir allar auðlindir innan ríkja sambandsins. Núverandi reglur um “hlutfallslegan stöðugleika” og almennt virðing fyrir eignarrétti og þjóðarhagsmunum mun hverfa sem dögg fyrir sólu. Tillitsleysið verður algert.

Einnig munu þjóðirnar allar sem ein tapa yfirráðum yfir lífi og limum borgara sinna og Brusselveldið mun hefja stórkostlega hernaðaruppbyggingu og herkvaðningu saklausra íbúa ESB-ríkjanna. Já, sameiginleg öryggis- og varnarstefna sem þjóðirnar taka nú þátt í eftir efnum, aðstæðum og áhuga verður við aðild Íslands skylduverk án undantekninga.

Auk þess er rétt að halda því til haga að “erlendir aðilar” munu um alla Evrópu eignast allt og allur virðisauki innan sambandsins flytjast eitthvað annað.

Og já, rétt er einnig að hafa í huga að við aðild Íslands mun afstaða ESB til landbúnaðar gerbreytast og verður hann lagður af eins og hann leggur sig. Hin ríka hefð ESB að styðja við og sýna landbúnaði aðildarríkjanna sérstaka tillitssemi verður lögð af við aðild Íslands.

Mikil er ábyrgð þín, Ísland, og ykkar Evrópuríkja ef þið samþykkið að hefja aðildarviðræður.

(PS. Ef þið trúið mér ekki má fræðast betur á vefjum Heimssýnar, sérstaklega hér, og Evrópuvaktarinnar.)

Hvað er líkt með Íslandi og Möltu?

júní 8, 2010

Heimsókn 13 íslenskra frumkvöðla til ESB í mars 2010

Í byrjun mars 2010 fór ég ásamt hópi íslenskra frumkvöðla í heimsókn til höfuðstöðva Evrópusambandsins í Brussel. Alls vorum við 13 Íslendingar úr ýmsum greinum atvinnulífsins. Auk mín voru í þessari ferð Eyjólfur Guðmundsson frá CCP, Hörður Harðarson frá svínaræktarfélagi Íslands, Vilborg Einarsdóttir frá Mentor, Sóley Elíasdóttir frá Sóley Organics, Þórunn Harðardóttir frá Norðursiglingu á Húsavík, Björn Víkingur Björnsson frá Fjallalambi á Kópaskeri, Erla Bjarney Árnadóttir frá Gogogic, Björn Lárus Örvar frá ORF Líftækni, Jón Ágúst Þorsteinsson frá Marorku, Arnar Knútsson frá Filmus, Helgi Haukur Hauksson frá félagi ungra bænda og Víðir Björnsson frá Norðurskel í Hrísey.

Í heimsókn okkar íslensku frumkvöðlanna til Brussel gafst okkur kostur á að hitta Dr. Joanna Drake sem er lögfræðingur frá Möltu og forstöðumaður á svið samkeppnishæfni lítilla og meðalstórar fyrirtækja (e.  Director of SMEs’ competitiveness).

Reynsla Maltverja

Dr. Joanna Drake greindi okkur Íslendingunum frá reynslu Maltverja af veru í Evrópusambandinu. Hún sagði einnig á mjög hreinskilin og heiðarlegan hátt frá reynslu Maltverja af samningaviðræðunum sjálfum og þeirri togstreitu sem ríkti innan maltnesku þjóðarinnar meðan á viðræðum stóð.

Malta er eyríki eins og Ísland og þar búa um 400 þúsund manns, aðeins fleiri en búa á Íslandi. Landið er 316 km2 og íbúar landsins tala eigið tungumál, maltnesku, auk ensku sem er mjög útbreidd. Stjórnvöld Möltu lögðu fram umsókn um aðild Möltu að Evrópusambandinu í júlí árið 1990 og það liðu 14 ár þar til Malta gekk síðan í sambandið; það var í maí árið 2004.

Skv. upplýsingum frá Dr. Joanna Drake skiptist maltneska þjóðin í tvær fylkingar meðan á aðildarviðræðum við Evrópusambandið stóð, með og á móti.

Fylking neikvæðra

Sú fylking sem var andvíg aðild Möltu að Evrópusambandinu ól á ótta við sambandsaðildina. Fjölskyldan er horsteinn samfélagsins á Möltu og konur óttuðust að synir þeirra yrðu sendir í Evrópuher sem brátt yrði stofnaður og látnir berjast á erlendum vígstöðvum. Margar konur voru því andvígar aðild Möltu að Evrópusambandinu  og töldu að sambandsaðild þýddi að fjölskyldum yrði sundrað. Lífskjör á Möltu voru ekki sambærileg við það sem gerðist best í Evrópulöndunum á þessum árum og því óttaðist fólk einnig að ungt fólk flytti brott til náms og betur launaðra starfa og kæmi aldrei aftur tilbaka. Stjórnendur fyrirtækja óttuðust samkeppni við evrópsk fyrirtæki sem greiddu hærri laun og óttuðust að missa vinnuafl úr landi. Sumir álitu jafnvel að lífkjör Maltverja myndu versna til muna  við að landið gengi í Evrópusambandið. Fólk leit gjarnan á Möltu sem „lítinn fisk“ sem yrði strax gleyptur af „stóra fiskinum“.

Fylking jákvæðra

Sú fylking manna sem var jákvæð gagnvart aðild Möltu að Evrópusambandinu leitaðist við að sjá tækifærin sem fælust í aðild. Það var fólk sem vildi að Malta fengi áhrif á vettvangi Evrópusambandsríkja, gjarnan fólk sem vildi sjá breytingar á stjórnarfari í átt að opnari og gegnsærri stjórnsýslu. Þessi fylking benti á ýmis spillingarmál og krafðist úrbóta, bættrar löggjafar og eftirlits með stjórnmálamönnum.

Almenn viðhorf fólks á Möltu

Dr. Joanna Drake minntist einnig á að meðan á aðildarviðræðum stóð hefði fólk verið mjög upptekið af því að hugsa um hvaða ávinning það hefði sjálft af því að þjóðin gengi í Evrópusambandið. Viðhorfið var gjarnan: “Hvað fæ ÉG?”

Þegar loks til þjóðaratkvæðagreiðslu kom samþykktu 54% íbúa á Möltu aðild að Evrópusambandinu.

Nú hefur þetta gjörbreyst, sagði Joanna Drake. Að hennar sögn hafa lífskjör batnað svo mikið á Möltu að nú ríkir almenn sátt um aðildina. Fólk horfir til tækifæranna sem felast í samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir og viðhorfskannanir þar í landi sýna að fólk er ánægðast með aukin lífsgæði, bætt hreinlæti, betri heilbrigðisþjónustu. Fólk nefnir einnig að spilling hafi minnkað og stjórnsýsla öll orðið opnari og gegnsærri. Umhverfismál skipta miklu máli og Maltverjum finnst að í þeim málum fái þeir mikinn stuðning Evrópusambandinu.

Evruaðild Möltu

Maltverjar tóku upp Evru árið 2008, það tók 4 ár en gekk vel. Evran hefur þýtt agi fyrir fólk, neytendur og stjórnvöld. Fólk lætur sig efnahagsmálin miklu meira skipta en áður fyrr. Nú, fyrri hluta árs 2010, er lítil kreppa á Möltu. Atvinnuástand er gott og stöðugt, þótt aðeins hafi dregið úr ferðamannastraumi. Mesta óánægjan er vegna ólöglegra innflytjenda og vandamálum sem þeim fylgja í þessu litla landi. Meira en 2000 flóttamenn og ólöglegir innflytjendur koma til Möltu frá Afríkuríkjum á ári hverju. Flestir þeirra líta á Möltu sem millilendingu á leið sinni til Ítalíu. Stjórnvöldum á Möltu ber skylda til að hjálpa þessu ólöglegu innflytjendum, en engin sameiginleg innflytjendastefna hefur víst enn verið mörkuð hjá Evrópusambandinu. Það gefur auga leið að það hlýtur að ve  agríðarlega kostnaðarsamt að halda öllu þessu fólki upp mánuðum og jafnvel árum saman.

Gæfuspor

Dr. Joanna Drake er sannfærð um að innganga Möltu í Evrópusambandið hafi verið gæfuspor fyrir Maltverja. Hún segir að almenningur hafi verið mjög vel upplýstur um öll mál þegar kom að atkvæðagreiðslu, eftir 14 ára umræður um kosti og galla aðildar Möltu að sambandinu. Hún gaf okkur Íslendingum þau ráð að vera heiðarleg og opin í allri umræðu um Evrópumálin hér á landi. Hún nefndi að umræðan á Möltu hefði á köflum verið mjög tilfinningaþrungin og illa hafi gengið að ræða við marga með rökum. Hún varaði við því að aðilar beittu hræðsluáróðri. Hún varaði einnig við því að embættismönnum væri beitt of mikið í Evrópuumræðunni. Betra væri að venjulegt fólk fengi tækifæri til að fræðast og kynna sér málin og það fólk fengi svo áfram tækifæri til að fjalla um Evrópumálin á mannamáli á opinberum vettvangi.

Ef endurtaka ætti

Loks spurðum við Dr. Joanna Drake hvað hún myndi vilja gera öðru vísi ef endurtaka ætti samningaviðræður Möltu við Evrópusambandið. Hún svaraði því til að nota hefði átt enþán meiri tíma í undirbúningsvinnu vegna samningsmarkmiða, kynningu og fræðslu til fólks. Hún nefndi einnig að meira gagnsæi hefði mátt vera gagnvart þjóðinni og að málflutningur hefði þurft að vera skiljanlegri. Embættismenn hefðu verið of áberandi í málflutningi og mikilvægt væri að nota mál sem venjulegt fólk skilur. Hún mælti með að fólk veldist til að tala inn í vissar atvinnugreinar og samfélagshópa. Evrópumálin eru á ábyrgð ríkisstjórnar en ekki einstakra flokka og forðast bæri að hafa umræðuna flokkspólitíska.

Lærum af reynslu Maltverja

Þessi fundur okkar íslenskra frumkvöðla með Dr. Joanna Drake rifjaðist upp fyrir mér þegar ég sá auglýsingu ungra bænda með stríðsfyrirsögn og skriðdreka, sem birtist í dagblöðum nýverið. Sem fyrr segir var Helgi Haukur Hauksson formaður ungra bænda með í þeirri ferð sem ég hef hér greint frá. Hann ásamt öðrum var mjög gagnrýninn á upplýsingar sem lagðar voru fram á fundum okkar í Brussel. Hópurinn í heild var reyndar mjög gagnrýninn og tækifærin til að spyrja og afla upplýsinga voru óspart nýtt. En það sem ýtti mér út í þessi skrif núna er viðvörun sú sem Dr. Joanna Drake gaf okkur, að gæta þess vel að spila ekki með tilfinningar fólks á ómálefnalegan hátt í umræðum um Evrópusambandsaðild Íslands. Það finnst mér að hafi gerst þegar ungir bændur reyndu að skelfa fólk með því að leggja að jöfnu aðild Íslands að Evrópusambandinu og það að börnin okkar verði send í Evrópuher og látin berjast á erlendum vígvöllum. Sams konar umræða fór í gang á Möltu árið 1990, fyrir 20 árum síðan. Þar í landi náðu menn að lokum taki á taugaspennunni sem fylgdi umræðunni um Evrópusambandsaðild.

Reynum að læra af reynslu annarra þjóða. Leggjum okkur fram við skilgreina samningsmarkmið Íslands í viðræðunum sem framundan eru og verum dugleg við að afla okkur upplýsinga og miðla þeim áfram til annarra. Munum að við erum í rauninni öll í sama liði.

Svana Helen Björnsdóttir,
forstjóri Stika og formaður Samtaka sprotafyrirtækja

Áhrif ESB-aðildar í Póllandi

júní 5, 2010

Pólland, sótti um aðild að ESB árið 1994 og fékk aðild 2004, ásamt fleiri löndum Austur-Evrópu. Landið er fimmta stærsta ríki ESB, með um 39 milljónir íbúa.Undanfarið hefur Grikkland fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Í umræðunni hefur því mun minna borið á þeim ríkjum ESB, þar sem vel hefur gengið. Pólland er einmitt eitt þessara ríkja. En hvernig hafa áhrif aðildar komið út fyrir Pólland? Í skýrslu sem gefin var út í fyrra eru áhrif aðildar á landið tekin saman.

Hagvöxtur (vöxtur þjóðarframleiðslu frá ári til árs), jókst verulega í Póllandi eftir aðild, sökum aukinnar eftirspurnar og fjárfestinga. Árið 2007 var 6,6% hagvöxtur í Póllandi, en að meðaltali var rúmlega fimm prósenta hagvöxtur á árunum 2003-2008. Á sama tímabili jókst framleiðni einnig umtalsvert, eða um 10% á sérstökum kvarða sem mælir slíkt.

Framlög ESB úr ýmsum sjóðum sambandsins eru mikilvægur þáttur í þróun efnahagsmála í Póllandi og á tímabilinu 2004-2008 fengu Pólverjar 14 milljarða evra frá ýmsum sjóðum/áætlunum ESB, umfram það sem þeir greiddu til sambandsins. Á tímabilinu 2007-2013 munu Pólverjar fá um 70 milljarða evra, sem m.a. á að nota til uppbyggingar á sviði samgöngu og umhverfismála, sem og almennrar atvinnuuppbyggingar.

Erlendar fjárfestingar hafa aukist verulega eftir aðild. Árið 2007 námu þær tæpum 17 milljörðum evra. Verslun og viðskipti hafa einnig aukist, eða um tæp 20% að magni til á ári frá aðild.

Pólland er mikil landbúnaðarþjóð, en mikil andstaða kom frá bændum gegn aðild, rétt eins og hér á landi. Pólskir bændur voru meðal tekjulægstu stétta í öllum fyrrverandi kommúnistaríkjum Evrópu fyrir aðild.

Frá aðild hefur hins vegar mikið breyst, til hins betra. Framleiðni í pólskum landbúnaði var árið 2007 um 47% hærri en árið 2000 og útflutningur á pólskum landbúnaðarvörum jókst um 250% á árunum 2003-2007. Innflutningur jókst á sama tímabili um 125%. Í frétt frá Warzaw Business Journal frá 10. maí sl. kemur fram að tekjur pólskra bænda hafi frá árinu 2000 aukist um 107%!

Í grein frá AFP frá 2009 kemur fram að afstaða pólskra bænda hafi orðið mun jákvæðari. Margir þverskallist þó við og fjárfesti ekki, en enn fleiri hafi notað stuðning frá ESB til að nútímavæða pólskan landbúnað. Eldri bændur hafa selt land (verð hækkaði) og því hafa pólsk býli stækkað. Pólskum bændum hefur fækkað, en þeir sem eftir eru, reka stærri bú og hafa meiri tekjur. Því eru pólskir bændur færri en fyrir aðild, en mun tekjuhærri. Á næstu árum mun stuðningur við pólskan landbúnað aukast enn frekar.

Tekið til í sjávarútvegi

Hvað varðar fiskveiðar, þá þurftu Pólverjar að taka til á þeim bænum, skip hafa verið úrelt með áætlunum sem ESB hefur styrkt og veiðigetan þar með minnkuð. Búist er við að floti Pólverja minnki enn frekar fram til 2013.

Frá aðild hefur hins vegar verðmæti fiskútflutnings aukist um 40%, en frá 2004-2007 jókst verðmæti fiskútflutnings úr 442 milljónum dollara í 923 USD árið 2007. Innflutningur á fiski hefur einnig aukist, aðallega til fullvinnslu. Þetta hefur leitt til stórfelldrar þróunar á framleiðslutækni pólsks fiskiðnaðar, sem hafði tvöfalt meiri tekjur árið 2008 en árið 2003.

Gríðarlegt atvinnuleysi var í Póllandi í byrjun aldarinnar, eða allt að 20%. Það tók að lækka eftir inngöngu landsins í ESB, en hefur nú aftur aukist vegna fjármálakreppunnar. Nú um stundir er atvinnuleysi í Póllandi um 10%. Búist er við að það lækki þegar líður á árið. Spáð er um 2,7% hagvexti í Póllandi í ár og 3,3% á næsta ári. Því gæti farið svo að atvinnuleysi minnki enn frekar í Póllandi á næsta ári.

Fram kemur í skýrslunni að með aðild að ESB hafi í raun lokið ferli sem gert hefur fyrrverandi kommúnistaríkið Pólland að frjálsu markaðshagkerfi, sem nú sé reiðubúið að takast á við vaxandi samkeppni á alþjóðamörkuðum.

Af þessu má draga þá ályktun að með aðild hafi Póllandi farnast mun betur en að standa fyrir utan ESB; “Með aðild hefur munurinn á Póllandi og öðrum leiðandi löndum álfunnar minnkað verulega,” segir í skýrslunni. Í áðurnefndri grein AFP telur pólskur embættismaður að Pólland hafi þróunarlega séð tekið “risastökk” með aðstoð frá ESB og það sé líka mjög að þakka yfirvöldum á sveitarstjórnarstiginu, sem hafi nýtt sér aðild á mjög skilvirkan hátt.

Samstaða um að nýta aðildina

Hér hafa aðeins verið nefnd nokkur atriði úr skýrslunni sem ber heitið “Five years of Poland in the European Union”. Mun fleiri þættir eru teknir fyrir í henni sem hafa haft mikla þýðingu fyrir Pólland, t.d. rannsóknar, og þróunarstarf, mennta og neytendamál. Þá eru hér ónefndir þættir eins og aukin pólitísk áhrif Pólverja í gegnum aðild og bætt og gjörbreytt staða þeirra á alþjóðavettvangi og innan Evrópu.

Greinileg samstaða er meðal Pólverja um að nýta sér aðildina til fulls, í þágu framfara fyrir pólsku þjóðina. Enda er mikill meirihluti Pólverja þeirrar skoðunar að landið eigi heima í ESB. Um þá gildir ef til vill vel orðatiltækið, “sá veldur, sem á heldur”.

Höfundur er M.A. í stjórnmálafræði og situr í stjórn Evrópusamtakanna.

FRBL, 3.6.2010

Ísland velkomið

maí 26, 2010

Christian Dan Preda heimsótti STERKARA ÍSLAND í dag. Hann er Rúmeni og er þingmaður á Evrópuþinginu. Christian Dan Preda á sæti í utanríkismálanefnd Evrópuþingsins og er hingað kominn vegna þess að hann er að undirbúa skýrslu fyrir nefndina um umsókn Íslands. Hann reiknar með að hún verði lögð fyrir í næstu viku.

Christian Dan Preda á fundi með fjölmörgum aðilum í heimsókn sinni en tilgangur hans er að fá sem besta heildarmynd af stöðu mála hér á landi í tengslum við umsókn Íslands.

Í máli hans kom skýrt fram að Ísland er velkomið og að á Evrópuþinginu verði hann ekki var við annað en umsókninni sé mætt af velvilja. Hann taldi af og frá að Ísland þyrfti að óttast áhrifaleysi og það gæfi alls ekki rétta mynd af áhrifum að horfa einungis til þingmannafjölda hvers í ríkis. Í fyrsta lagi starfaði Evrópuþingið fyrst og fremst eftir pólitísku litrófi óháð því hvaðan þingmenn kæmu. Í öðru lagi væri ávallt reynt að leita eins breiðrar samstöðu og unnt væri og taka tillit til sjónarmiða. Þá væri það þannig að ef ríki hefðu mikla hagsmuni í tilteknum málum sæktust þingmenn þess eftir því að taka þátt í störfum þeirra nefnda sem um þau fjölluðu. Nefndi hann sem dæmi að Kýpur einbeitti sér mjög að utanríkismálum vegna sérstöðu þeirra gagnvart Tyrklandi.

Christian Dan Preda í heimsókn hjá STERKARA ÍSLANDI

Christian Dan Preda í heimsókn hjá STERKARA ÍSLANDI

Christian Dan Preda reiknaði með jákvæðri umfjöllun og umsögn Evrópuþingsins um aðildarumsókn Íslands. Vissulega væri rætt um umsóknina frá sjónarhóli Evrópusambandsin og menn veltu því fyrir sér hvaða jákvæðu og neikvæðu áhrif gætu fylgt, rétt eins og Íslendingar velta áhrifum aðildarinnar á Ísland og íslenska hagsmuni fyrir sér.

Ein fjöður …

maí 22, 2010

Ólund Morgunblaðsins vegna umsóknar Íslands að Evrópusambandinu vex stöðugt. Enginn er hissa á því sem sagt er um þau mál í þeim hlutum blaðsins þar sem skrifað er nafnlaust í leiðurum, Staksteinum og Reykjavíkurbréfi. Ekkert er við það að athuga að ritstjórarnir, annar eða báðir, sjái rautt þegar aðild Íslands ber á góma. Hitt er verra þegar fréttaflutningur blaðsins er farinn að draga dám af skoðunum ritstjóranna. Þeir virðast hafa verið fljótir að gleyma hátíðlegum loforðum um annað í bréfi til stórs hluta áskrifenda blaðsins sem sagði upp áskrift að blaðinu þegar þeir tóku við blaðinu og óskuðu eftir að fá að sanna sig með hlutlausum fréttaflutningi.

Ein fjöður verður að …
Lítið dæmi um þetta er frétt blaðsins og síðan útleggingar í leiðara þann 21. maí af samantekt nokkurri sem gerð var fyrir nokkra þingmenn í Evrópuþinginu og fjallar m.a. um umsókn Íslands og íslensk málefni.

Í frétt blaðsins er fullyrt að um skýrslu framkvæmdastjórnar ESB til Evrópuþingsins sé að ræða. Þetta eru eru staðlausir stafir með öllu og hreinn uppspuni. Umrætt plagg sem undirritaður hefur lesið frá upphafi til enda er innanhússplagg í Evrópuþinginu. Það er samið af starfsmanni skrifstofu innan Evrópuþingsins sem heitir upp á ensku: Directorate-general for external policies of the Union, policy department.

Skýrslan, eða réttara sagt samantektin (Country briefing), er sett saman að beiðni þingmanna á Evrópuþinginu sem eru í svokölluðu stækkunar- og EES teymi (European Parliament’s Enlargement and European Economic Area Unit). Samantektin var gefin út 17. maí.

Hlutlaus samantekt
Plaggið er samantekt á staðreyndum um Ísland, samskiptum Íslands og ESB, staðreyndum um aðildarumsóknina og afstöðu stjórnmálaflokka, hagsmunasamtaka og áhugamannasamtaka. Frá þessu öllu er sagt með hlutlausum hætti og stærstur hluti samantektarinnar er útdráttur úr greinargerð utanríkismálanefndar Alþingis og vegvísi um aðildarviðræðurnar sem lögð var til grundvallar aðildarumsókn Íslands.

Í samantektinni eru ekki viðraðar neinar skoðanir eða tekin afstaða af hálfu skýrsluhöfundar. Einungis er vísað til viðhorfa og skoðana á Íslandi. Í samantektinni er einnig vísað til ítarlegrar umsagnar framkvæmdastjórnar ESB um umsókn Íslands þar sem mælt er með að taka upp viðræður við Ísland á grundvelli aðildarumsóknar frá 16. júlí, en umsögnin var send Evrópuþinginu og ráðherraráði ESB þann 24. febrúar á þessu ári og er öllum aðgengileg og hefur verið fjallað ítarlega um efni hennar í fjölmiðlum.

Samantektin fyrir Evrópuþingmennina er vel unnin. Rekur vel mismunandi sjónarmið á Íslandi til aðildar að ESB og gefur stutt yfirlit um stöðuna í stjórnmálum og efnahagsmálum Íslands.

Af ávöxtunum …
Ef umrædd frétt Morgunblaðsins og þær útleggingar sem ritstjórar byggja á henni eru dæmi um vinnubrögð blaðsins þegar fjallað er um aðild Íslands að ESB þar á bæ er ekki von á góðu. Þá verður framvegis að setja fyrirvara við allt sem stendur í því ágæta blaði um þessi mál.

Fróðleikur á fimmtudegi V – 6. maí

maí 1, 2010

Nú eru að baki nokkrir fundir í syrpunni okkar: Fróðleikur á fimmtudegi. Nú er komið að því að ræða um íslenska menningu og Evrópusambandið. Það gerir Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur.

Hér er Facebook-síða um fundinn.

Fundurinn er á hefðbundnum stað og tíma: Skipholt 50a, 2. hæð. kl. 17.

Öll erindin sem hafa verið flutt hingað til hafa verið skemmtileg og fróðleg. Fundirnir er óformlegir og umræður oft fjörlegar.

Anna Margrét Guðjónsdóttir

Anna Margrét talar um uppbyggingarsjóði

Síðast talaði Anna Margrét Guðjónsdóttir um uppbyggingarsjóði ESB og stefnu bandalagsins í svæðaþróun. Anna Margrét var í þrjú ár í Brussel á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga til þess að kynna sér þessi mál.

Félagsmenn Sterkara Íslands, velunnarar og áhugamenn um aðild Íslands að Evrópusambandinu eru eindregið hvattir til þess að líta við hjá okkur í lok dags á fimmtudögum og fræðar um mikilvæga þætti þessa mikilvæga máls.

Hér eru linkar á glærur sem fyrirlesarar hafa stuðst við á fyrri fræðslufundum:

Ragnhildur Helgadóttir um fullveldið

Svana Helen Björnsdóttir um íslenska frumkvöðla í Brussel

Árni Finnsson um umhverfismál

Anna Margrét Guðjónsdóttir um uppbyggingarsjóði

Þess vegna er ég Evrópusinni

apríl 23, 2010

Frá því Ísland varð sjálfstætt ríki hefur því í öllum aðalatriðum vegnað vel og komist í hóp þeirra ríkja heimsins þar sem lífskjör eru einna best. Þetta hefur að hluta tekist vegna eigin rammleiks og þrautsegju en ekki síður vegna ytri aðstæðna, ekki síst á alþjóðavettvangi, sem sköpuðu þjóðinni afar hagstæð skilyrði.

Vogarafl
Lega landsins varð að gríðarlegu vogarafli í samskiptum okkar til austurs og vesturs. Síðari heimsstyrjöldin leiddi í ljós hernaðarlegt mikilvægi landsins í styrjöldinni sjálfri og síðan í eftirleik styrjaldarinnar, kalda stríðinu, allt til brotthvarfs Bandaríkjahers frá Keflavíkurflugvelli.

Þetta vogarafl nýttum við okkur óspart í uppbyggingunni eftir stríð, t.d. í tengslum við Marshall-aðstoðina, síðan í tengslum við alls kyns viðskipti, bæði til austurs og vesturs, loftferðasamninga og ekki síst beittum við því í tengslum við útfærslu landhelginnar. Þetta varð allt undirstaða fyrir aukna velsæld og síðar framþróun og umbreytingu í atvinnulífinu.

Nýr kraftur
Umbreyting atvinnulífsins seig hægt af stað með aðild Íslands að EFTA 1970 og fríverslunarsamningunum við ESB 1972. Þeir samningar opnuðu samkeppni í iðnaði og þó hún væri erfið í fyrstu varð hún forsenda þess að hér hefur smá saman orðið til þróttmikill iðnaður. Aðild Íslands að EES-samningnum 1994 opnaði fyrir samkeppni á öðrum sviðum atvinnulífsins, nema landbúnaði og sjávarútvegi, auk þess að veita Íslandi aðgang að margvíslegu samstarfi á fjölmörgum sviðum, t.d. vísinda og mennta. Aðildin að EES hleypti enn nýjum krafti í atvinnulífið og þjóðlífið allt.

Breyttar aðstæður
Þróun alþjóðamála hefur leitt til þess að vogaraflið sem við höfðum vegna legu Íslands er horfið. Nú erum við vegin og metin af eigin verðleikum. Við verðum að spila sem best úr þeim spilum sem við höfum á hendi, þau eru vissulega allgóð og þar leynast inn á milli hin þokkalegustu trompspil.

Efnahagshremmingar þær sem hafa gengið yfir heimsbyggðina og ekki síst skekið Ísland sýna svart á hvítu hve háðar þjóðirnar eru hver annarri. Margs konar önnur verkefni krefjast samvinnu og nægir þar að nefna umhverfismál og nýtingu auðlinda. Þá er býsna nærtækt að benda á eldgosið í Eyjafjallajökli og víðtækar afleiðingar þess á fjölmargar þjóðir.

Hreyfiaflið
Ísland er Evrópuland. Það er því nærtækast að leitað sé eftir samvinnu við Evrópuþjóðir. Ísland hefur gert það með góðum árangri á liðnum áratugum. Við eigum að halda áfram á sömu braut og ganga í Evrópusambandið. Þar getum við beitt okkur á þeim sviðum sem varða okkur mestu og jafnframt miðlað til annarra þar sem við stöndum vel að vígi. Samtímis njótum við styrks af samvinnunni og skjóls af sameiginlegu afli tæplega 30 Evrópuríkja.

Evrópusambandið er hreyfiafl Evrópu og við erum undir áhrifasvæði þess og örlög okkar fara óhjákvæmilega saman. Ísland á að taka fullan þátt í að móta eigin framtíð.

Ég vil sterkara Ísland, Ísland sem er þjóð meðal þjóða – þess vegna er ég Evrópusinni.


(Birtist fyrst sem grein í Morgunblaðinu 23. apríl 2010 undir fyrirsögninni: Sterkara Ísland – þjóð meðal þjóða)

Fróðleikur á fimmtudegi IV – 29. apríl

apríl 22, 2010

Áfram höldum við með fundaröðina okkar. Þrír fundir eru að baki og hafa allir tekist vel.

Á fundinum þann 29. apríl fjallar Anna Margrét Guðjónsdóttir , sérfræðingur, um samspil nokkurra uppbyggingarsjóða ESB og hvaða tækifæri gætu falist þar fyrir Ísland. Erindi sitt kallar hún: Uppbyggingarsjóðir, dreifbýlissjóðir og sjávarbyggðasjóðir ESB.

Að venju hefst fundurinn kl. 17 og er haldinn að Skipholti 50a, II. hæð.

Hér er fundurinn skráður á Facebook.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Næsti fundur í röðinni er svo 6. maí en þá ræðir Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur um íslenska menningu og Evrópusambandið.

Fróðleikur á fimmtudegi

mars 20, 2010

STERKARA ÍSLAND – þjóð meðal þjóða hleypir nú af stokkunum fundaröðinni FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI.
Fundirnir verða í Skipholti 50a og hefjast allir kl. 17. Þeir eru ætlaðir félagsmönnum og öðrum áhugasömum um aðild Íslands að ESB.

Fundarefni og fyrirlesarar næstu fimmtudaga eru sem hér segir:

25. mars  – Ísland, Evrópusambandið og fullveldið

Ragnhildur Helgadóttir
prófessor  fjallar um fullveldi Íslands og aðild að ESB. Ragnhildur er einn mesti fræðimaður landsins á þessu sviði og er formaður samningshóps Íslands við Evrópusambandið um dóms- og innanríkismál.
———–

8. apríl – Íslenskir frumkvöðlar ræða við ESB

Svana Helen Björnsdóttir forstjóri Stika segir frá mjög fróðlegri heimsókn íslenskra frumkvöðla til höfuðstöðva ESB í Brussel  í mars.

Staðfestið mætingu á Facebook
———–

15. apríl – Umhverfismálin og ESB

Árni Finnsson formaður Nátturuverndarsamtaka Íslands fjallar um tækifæri og ógnanir í umhverfismálum í tengslum við aðild að ESB.

Staðfestið mætingu á Facebook
———–

29. apríl  – Uppbyggingarsjóðir, dreifbýlissjóðir og sjávarbyggðasjóðir ESB

Anna Margrét Guðjónsdóttir fjallar um samspil nokkurra uppbyggingarsjóða ESB og hvaða tækifæri gætu falist þar fyrir Ísland.
———–

6. maí  – Íslensk menning og Evrópusambandið

Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur ræðir um íslenska menningu og aðild að ESB.
———–

Efnahagsvandinn, Evrópusambandið og sjávarútvegurinn

mars 19, 2010

Ég verð með erindi í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum klukkan 11.00 laugardaginn 20. mars.

Efnahagsvandinn, Evrópusambandið og sjávarútvegurinn

Allri velkominr