Sterkara Ísland

15/02/2011

Nýr vefur www.jaisland.is

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 14:24

Ja_island_logoInnan skamms verður þessum vef www.sterkaraisland.is lokað en slóðin mun vísa á www.jaisland.is.

www.jaisland.is er nýr og bættur vefur þar sem haldið er utan um verkefni Já Ísland.

Já Ísland er unnið í samvinnu Evrópusamtakanna, Evrópuvakt Samfylkingarinnar, Sjálfstæðra Evrópumanna, Sterkara Íslands og Ungra Evrópusinna

Já Ísland

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 14:14

Ja_island_logoÞað var fjölmenni í Þjóðmenningarhúsinu í hádeginu í dag þegar Já Ísland var formlega kynnt til sögunnar.

Evrópusamtökin, Evrópuvakt Samfylkingarinnar, Sjálfstæðir Evrópumenn, Sterkara Ísland og Ungir Evrópusinnar hleyptu sameiginlega af stokkunum samstarfsverkefninu Já Ísland á fjölmennum fundi í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Því er ætlað að vera samnefnari fyrir málefnalega umfjöllun og upplýsingamiðlun um aðild Íslands að ESB og leggja þannig grunn að því að Íslendingar geti tekið upplýsta ákvörðun þegar aðildarsamningur liggur fyrir.

Jón Steindór Valdimarsson flutti stutt ávarp í lok fundarins og sagði m.a.:

„Við náum ekki árangri nema vinna vel saman og leggjast öll á eitt um vandaða umræðu og miðlun upplýsinga. Við verðum öll að leggja okkar af mörkum til þess að íslensk þjóð fái notið þeirra sjálfsögðu mannréttinda að taka upplýsta ákvörðun um gríðarstórt hagsmunamál.Upplýsta ákvörðun um framtíðarheill.Upplýsta ákvörðun sem byggist á hlutlægni en ekki hleypidómum.

Það er líka ljóst að við sem hér stöndum erum ekki sammála um öll rök í þessari flóknu umræðu um aðild að Evrópusambandinu. Það sem einum þykir mikilvægt þykir öðrum léttvægara. Aðalatriðið er að við erum sammála um markmiðið og höfum ákveðið að vinna saman að því.”

Að baki ræðumanna stóð þéttur veggur stuðningsmanna og myndaði þannig táknrænt bakland og styrk þeirra sem vilja aðild Íslands að Evrópusambandinu að fengnum góðum aðildarsamningi sem þjónar heildarhagsmunum þjóðarinnar.

07/02/2011

ESB reiðubúið að aðstoða við afnám gjaldeyrishafta

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 16:29

18332-00-01Olli Rehn, framkvæmdastjóri efnahagsmála hjá Evrópusambandinu, segir að sambandið sé tilbúið til þess að veita Íslendingum tæknilega aðstoð til þess að losna við gjaldeyrishöftunum

“Það er mjög mikilvægt fyrir Íslendinga að byrja að undirbúa það að geta aflétt gjaldeyrishöftum og að tengja það við evrópsk sjónarmið,” sagði Rehn eftir fund með Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra Íslands, í Brussel í dag.

Fréttaveitan bloomberg greindi frá fundinum.

Sjá einnig umfjöllun á visir.is.

04/02/2011

Hvaða tækifæri felast í ESB aðild fyrir börn?

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 11:06

Symbolique 2006Næsti hádegisfundur Evrópuvaktar Samfylkingarinnar verður haldinn næstkomandi þriðjudag 8. febrúar og er umræðuefnið ”Hvaða tækifæri felast í ESB aðild fyrir börn?” Frummælendur eru þeir Ásgeir Beinteinsson skólastjóri og Eystein Eyjólfsson upplýsingafulltrúi. Að loknum framsöguerindum verða opnar umræður og eru fundarmenn hvattir til að taka þátt. Fundurinn verður haldinn á Kaffi Sólon (efri hæð) í Bankastræti frá kl. 12.00 til 13.00 og er öllum opinn. Dagskrá hádegisfundanna til vors má sjá hér.

Ísland er virkur þáttakandi í fjölmörgum Evrópuáætlunum sem varða menntamál og langflestir sem fara í nám erlendis, fara til Evrópu.

Sjá t.d. hér: http://erasmus.is/

Aðild að ESB eflir nýsköpun og hinar dreifðu byggðir

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 08:07

ReykjavikStefán Haukur Jóhannesson, formaður samninganefndar Íslands í aðildarviðræðunum, telur hinar skapandi greinar atvinnulífsins muni njóta góðs að aðild Íslands að ESB. Þetta kom fram á kynningarfundi sem haldin var í utanríkisráðuneytinu með ýmsum fulltrúum hinna skapandi greina en þeir eru, meðal annars, listamenn og útgefendur.

Það sem skiptir mestu máli er að landið fengi sæti við borðið þar sem stefna ESB í þessum málum er ákveðin. Stefán nefndi einnig að aðild kæmi sér einkar vel fyrir hinar dreifðu byggðir.

“Í byggðamálum ESB er verið að leggja meiri áherslu á skapandi greinar. Byggðastefnan snýst ekki bara um að byggja nýja vegi heldur um ýmsa nýsköpun. Þetta gæti falið í sér aukna möguleika fyrir skapandi greinar,” segir Stefán.

Byggt á frétt Fréttablaðsins

29/01/2011

Evrópusambandið græðir lítið á Íslandi

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 13:21

Islandske flaggJean-Claude Piris fyrrverandi ráðgjafi ráðherraráðs sambandsins og yfirmaður lögfræðisviðs þess er í viðtali við Fréttablaðið í dag. Hann segir frá því í viðtalinu að ESB græði lítið á því að Ísland verði þar aðildarþjóð.Telur hann að Íslendingar muni njóta ávaxta af slíkri aðild en að hún sé ekki nein guðsgjöf fyrir ESB og að tímasetning aðildarumsóknarinnar sé ekki verulega góð.

Hann þvertekur fyrir að Íslendngar muni verða áhrifalausir innan sambandsins. „Jafnvel stóru ríkin, þegar þau standa ein, hafa ekki nóg af atkvæðum til að ráða því sem þau vilja þegar kosið er eftir meirihlutareglu. En þegar mikilvægir hagsmunir einhvers aðildarríkis eru í húfi tekur ESB ekki ákvarðanir á þennan hátt. Það er gengið mjög langt til að koma til móts við hvert ríki.“

Viðtalið við Piris er í Fréttablaðinu í dag.

25/01/2011

Sjávarútvegsstefna ESB og aðildarumsókn Íslands

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 12:34

ReykjavikFyrsti fundurinn í fundarröðinni fróðleikur á fimmtudegi verður fimmtudaginn 27. janúar. Frummælandi á fundinum verður Gunnar Þórðarson, viðskiptafræðingur og verkefnastjóri hjá Matís á Vestfjörðum. Gunnar mun í erindi sínu fjalla um sjávarútvegsstefnu ESB og aðildarumsókn Íslands.

Gunnar er með MS gráðu í rekstrarstjórnun frá H.A. og M.S. í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst. Hann hefur nánast allan sinn starfsferil starfað við sjávarútveg eða tengd störf hérlendis og erlendis.

Gunnar hefur mikinn áhuga á málefnum sjávarútvegs og tekið ríkan þátt í pólitískri umræðu um atvinnugreinina og hvernig megi hámarka ávinning þjóðarinnar af nýtingu auðlindarinnar. Hann telur að hægt sé að semja um sjávarútvegsmál við ESB, sem er forsenda inngöngu í sambandið. Ekki kemur til greina að fórna hagkvæmum sjávarútveg þjóðarinnar á altari inngöngu, enda mikilvægi hans fyrir íslenskt hagkerfi óumdeilt.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal Sterkara Íslands í Skipholti 50a frá kl. 17.00  til 18.00. Gert er ráð fyrir að erindin taki 20-30 mín og síðan eru umræður og eru fundarmenn hvattir til að taka þátt í umræðunum.

24/01/2011

ESB og fólkið í landinu

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 17:48

halldor_hermannssonAnnar hádegisfundur Evrópuvaktar Samfylkingarinnar á nýju ári verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 25. janúar. Frummælendur eru þeir Halldór Hermannsson, skipstjóri á Ísafirði, og Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Að loknum framsöguerindum verða opnar umræður og eru fundarmenn hvattir til að taka þátt. Fundurinn verður haldinn á Kaffi Sólon (efri hæð) í Bankastræti frá kl. 12.00 til 13.00 og er öllum opinn.

21/01/2011

Aðild að ESB auðveldar viðskipti við ríki utan sambandsins.

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 15:58

P-012676-00-03Já, aðild ríkja að ESB auðveldar viðskipti við ríki utan sambandsins. Fernt skiptir hér mestu.

Í fyrsta lagi hefur þátttaka í sameiginlegum markaði ESB jákvæð áhrif á undirbúning og aðlögun að samkeppni á alþjóðamörkuðum. Viðskipti eru að öðru jöfnu auðveldari innan svæða sem lúta sömu reglum en milli svæða þar sem reglur eru ekki þær sömu. Þau öðlast reynslu og þekkingu í því að takast á við aukna samkeppni. Fyrirtækin eru því betur í stakk búin að hasla sér völl utan sambandsins og selja vöru sína og þjónustu á fjarlægum mörkuðum.

Í öðru lagi veitir aðild að Evrópusambandinu aðgengi að fjölda viðskiptasamninga og fríverslunarsamninga við ríki utan sambandsins. ESB er í miklu betri samningsstöðu en einstök ríki sambandsins að ná góðum viðskiptasamningum. Þannig hefur sambandinu bæði tekist að bæta kjör neytenda og möguleika fyrirtækja að sækja á ný mið.

Í þriðja lagi öðlast aðildarríki aukið traust og trúverðurleika með þátttöku í ESB þar sem sömu lög og reglur gilda um öll viðskipti. Ríki utan sambandsins vita að hverju þau ganga og eru mun líklegri til að þekkja þann lagaramma sem þeim ber að starfa eftir innan ríkja sambandsins en í ríkjum Evrópu sem standa utan ESB.

Í fjórða lagi gefst ríkjum ESB kostur á því að taka upp Evru eða tengja gjaldmiðill sinn við hana sem hefur í för með sér stöðugra gengi, lægri vexti, bætt viðskiptakjör og aukin viðskipti við ríki innan sem utan sambandsins.

Loks má ekki gleyma því að ef Ísland gengur í ESB munu öll viðskipti og atvinnustarfsemi lúta sömu reglum og tíðkast á 500 milljóna manna markaði. Það mun gera Ísland að vænlegri stað fyrir erlenda fjárfesta. Þá er hægt að einbeita sér að því að kynna kosti landsins og sérstöðu sem veitir samkeppnislegt forskot.

Þetta svar og fjölmörg önnur er að finna á vefsvæðinu kannski.is sem er upplýsingaveita um umsókn Íslands að ESB. Markmið vefsins er að auðvelda fólki að taka upplýsta afstöðu til aðildar og er lögð áhersla á að vefurinn sé óháður og hlutlaus vettvangur til að miðla upplýsingum um kosti og galla aðildar. Öllum er frjálst að senda inn spurningar á  www.kannski.is.

Sterkara Ísland á Austurlandi

Filed under: óflokkað — Ritstjórn @ 14:06

Sterkara Ísland hélt fund á Austurlandi og var hann vel sóttur og tókst í alla staði vel.

Elvar Örn Arason, framkvæmdastjóri Sterkara Íslands, flutti inngangserindi en að því loknu töluðu þau Rannveig Þórhallsdóttir framkvæmdastjóri Sagnabrunns og Hafliði Hafliðasons framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands.

Rannveig fjallaði um tækifæri frumkvöðla á landsbyggðinni innan ESB og Hafliði  fjallaði um austfirska þekkingu sem útflutningsvöru.

Fjörugar umræður urðu á fundinum.

Í lok fundarins var ákveðið að stofna undirhóp Sterkara Íslands á Austurlandi

Í stjórn voru valin þau:

Jóhann Hjalti Þorsteinsson, formaður stjórnar

Rannveig Þórhallsdóttir

Guðmundur Tuliníus

Björgvin Valur Guðmundsson

Stefanía G. Kristinsdóttir

IMG_7027-10cm

Older Posts »

Powered by WordPress